Langanes - Fontur

Ferðafélagið Norðurslóð

4ra daga gönguferð.

Dagsetning: 20.-23. júní 2011

Brottfararstaður: Farfuglaheimilið Ytra - Lóni

Erfiðleikastig: 2 skór

Lýsing:
Ganga um friðsæla byggð sem var og eyðiþorp með mikla sögu, um lífleg fuglabjörg og út á ysta odda Langaness. Gist er eina nótt á farfuglaheimili en tvær nætur í tjaldi. Farangur fluttur milli gististaða, aðeins gengið með dagspoka. Ekki þarf að vaða ár.

1. dagur, mánudagur: Gengið frá farfuglaheimilinu Ytra-Lóni um svokallaðan eyðibýlahring og fræðst um sögu bæjanna og byggðarinnar. Kvöldverður og gisting á Ytra-Lóni. 14 km.

2. dagur: Fólki ekið upp á Heiðarfjall og ummerki ratsjárstöðvar varnarliðsins skoðaðar. Gengið þaðan með ströndinni um Hrolllaugsstaði og Skálabjarg að Skálum þar sem tjaldað er til tveggja nátta. 13 km.

3. dagur: Gengið frá Skálum út á Font, þaðan á norðanverðu nesinu í Skoruvík og aftur að Skálum. Slétt og gott gönguland. 24 km.

4. dagur: Frá Skálum er gengið þvert norður yfir nesið, út á Skoruvíkurbjarg sem iðar af fugli og litið á súlubyggðina í Stóra-Karli. Frá Stóra-Karli er ekið til baka að Ytra-Lóni.

Þátttakendur leggja sjálfir til tjöld og tilheyrandi búnað en á Skálum verður eldhústjald og eldunaraðstaða.

Ferðin er á vegum Ferðafélagsins Norðurslóð.
Netfang ffnordurslod@simnet.is

Vefur um Norðausturland, nordausturland.is


Bókun og nánari upplýsingar:

ffnordurslod@simnet.is

Skráning í síðasta lagi 6. júní.

Verð: 45.000 / 49.000. Innifalið er gisting og matur á Ytra-Lóni, trúss og fararstjórn.